Vogrís (Hordeolum)

 

Erla Sveinsdóttir, læknir
 

  • Hvað er Vogrís?


  • Vogrís er sýking í hársekk í efra eða neðra augnloki. Þetta er nokkuð algengur kvilli en með öllu hættulaus. Iðulega gengur vogrís yfir á u.þ.b. viku. Ef um endurtekna eða útbreidda sýkingu er að ræða ber að leita læknis.

  • Hver er orsökin?


  • Sýkingin stafar af bakteríum (klasasýklum).

  • Hver eru einkennin?


  • Eymsli og roði myndast á augnloki við augnhár. Hvítur graftrarnabbi myndast á roðasvæðinu og springur hann iðulega eftir fáeina daga. Þá tæmist gröfturinn út og augnhárin losna. Eymslin hverfa þegar gröfturinn losnar og augnlokið jafnar sig á skömmum tíma.

    Stöku sinnum fylgir aukið tárarennsli, ljósfælni og tilfinning um að aðskotahlutur sé í auganu.

  • Hver er meðferðin?


  • Þegar augnlokið verður aumt og rautt er hægt að leggja við það heita bakstra í nokkrar mínútur í senn, þrisvar á dag. Þegar graftrarnabbinn myndast er hægt að kippa augnhárinu burtu og við það tæmist gröfturinn út. Því næst skal þvo augnlokið vandlega með bómullarhnoðra vættum í heitu soðnu vatni þar til allur gröftur er horfinn.

    Stundum myndast vogrís endurtekið með stuttu millibili eða verða fleiri en einn í einu. Þá hefur sýkingin breiðst út og er þá hægt að meðhöndla með sýklalyfi.

  • Leitið læknis ef:
    • ef sýkingin verður þrálát
    • allt augnlokið er bólgið
    • húðin umhverfis augað fer að roðna
    • aðrar sýkingar s.s. hvarmabólga eru einnig til staðar.

 

 Doktor.is | Auglýsingar | Siðareglur | Lagalegur fyrirvari
Copyright © 1999 - 2009  Doktor.is

fff ?php echo $gantry-div class=