Doktor.is er stofnaður í þeim tilgangi að gefa öllum kost á að nálgast með nútímalegum hætti vandaðar upplýsingar um læknisfræði, lyf og sjúkdóma og miðla ávallt nýjustu þekkingu á þessum sviðum.
Allar upplýsingar og öll gögn sem safnað er í upplýsingabanka Doktor.is skulu alltaf vera öllum aðgengileg.
Markmiðið með Doktor.is er að bæta heilsufar Íslendinga með fræðslu og upplýsingum um heilbrigði, sjúkdóma og lyf á máli sem er öllum skiljanlegt og brúa á þann hátt bilið milli lækna og almennings. Með það í huga að sjálfsþekking og aðgengi upplýsinga er mikilvægur þáttur í að tryggja sem best heilbrigði í samfélaginu. Er ætlunin að Doktor.is þjóni því markmiði eins og frekast er kostur.
Á Doktor.is er leitast við að hafa efni upplýsingabankans á hverjum tíma í hæsta gæðaflokki. Þetta er gert með því að tryggja að starfsfólk Doktor.is sé hæfustu sérfræðingar á sínu sviði. Ritstjóra og prófarkalesurum ber skylda til að tryggja að upplýsingar séu sífellt uppfærðar í ljósi nýjustu þekkingar. Doktor.is leggur sig fram við upplýsingaöflun, miðlun og þverfaglega læknisfræðilega samvinnu.
Sjálfstæði ritstjórnarinnar hefur afgerandi þýðingu fyrir Doktor.is til að tryggja hlutleysi gagnvart pólitískum og efnahagslegum sérhagsmunum. Sérfræðingar Doktor.is skuldbinda sig til að birta réttustu upplýsingar út frá faglegu læknisfræðilegu mati. Sérfræðingar Doktor.is mega aldrei láta fjárhagslega hagsmuni hafa áhrif á störf sín heldur eingöngu sérfræðilegt, læknisfræðilegt og faglegt mat. Af sömu ástæðu skal ekki afla tekna með Doktor.is frá einu fyrirtæki eða fáum en skuldbinda sig til að tryggja sem mesta dreifingu í innkomu tekna. Styrktaraðilar Doktor.is skulu tilgreindir óháð því í hverju stuðningur þeirra felst. Auglýsingar og annað efni sem þjónar ákveðnum hagsmunum er skýrt aðgreint frá eigin upplýsingum Doktor.is.
Upplýsingavefurinn Doktor.is er starfræktur með það grundvallarsjónarmið í huga að stöðugt skuli leggja vinnu í að styrkja fagleg gæði og framboð á þjónustu.
Hluta af hugsanlegum ágóða rekstursins skal veita til mannúðarmála í formi hjálparstarfs, aðstoðar sem stuðlar að auknu heilbrigði eða mannréttindum í heiminum.
Öll ráðgjöf sem stendur til boða hjá Doktor.is skal veitt af læknum, lyfjafræðingum eða hjúkrunarfræðingum með tilskilin réttindi. Sé svo ekki verður að koma skýrt fram að upplýsingar séu frá einstaklingi/fyrirtæki sem ekki hafa þessi réttindi. Reynt er að byggja þá læknisfræðilegu þekkingu sem er miðlað gegnum Doktor.is á rannsóknum í læknisfræði og meta og taka afstöðu til þess rökstuðnings sem þar kemur fram.
Þær upplýsingar sem gefnar eru á Doktor.is er ætlað að styrkja en ekki koma í stað þess sambands sem er milli einstaklingsins og læknis hans.
Allar persónulegar upplýsingar sem snerta notendur Doktor.is, svo sem nöfn og kennitölur, er farið með sem trúnaðarmál. Doktor.is er lagalega og siðferðilega bundinn af læknaeiðnum um að veita ekki upplýsingar um trúnaðarmál sjúklinga.