Greinar » Fyrirspurnir

Er aukin hćtta á fylgjulosi?

Dagný Zoega, ljósmóðir
Skrifađ sunnudagur, 29. jún - 2003

Spurning:
Hæ hæ.
Mig langar að vita hvort það sé meiri hætta á fylgjulosi þegar það hefur einu sinni komið fyrir, ég lenti í algjöru fylgjulosi þegar ég var kominn 37 vikur á leið og missti barnið. Nú langar mig að reyna að eignast annað barn, hver er áhættan að þetta komi fyrir aftur og hvers vegna kemur svona fyrir seint á meðgöngu?

Svar:
Hættan á fylgjulosi er aðeins aukin hafi fylgjulos átt sér stað áður. Ekki er fullljóst hvers vegna fylgjulos verður en áhættuþættir eru t.d. reykingar, aðgerðir sem gerðar hafa verið á legi, högg eða byltur, fjölburameðganga, mikið legvatn og eiturlyfjanotkun.

Hafir þú áhyggjur skaltu ræða við sérfræðing í fæðingarhjálp og ef þú ferð út í aðra meðgöngu verður vel fylgst með þér, sérstaklega þegar líður á meðgönguna.

Kveðja,

Dagný Zoega, ljósmóðir

Deila á facebook

Fréttaskot

 
 
 
 
 

 Doktor.is | Auglýsingar | Siðareglur | Lagalegur fyrirvari
Copyright © 1999 - 2009  Doktor.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun