Greinar » Greinar » Líkamshlutar » Háls, nef og eyru

Hálsbólga

Skrifađ föstudagur, 27. feb - 2009

  • Hvað er hálsbólga?

    Hálsbólga er sýking í hálskirtlumog umhverfis þá. Bæði veirur og bakteríur valda hálsbólgu. Hálsbólga getur komið fram ein og sér en fylgir oft öðrum sýkingum t.d. flensu og einkirningasótt. Hálsbólga leggst á alla aldurshópa. Helstu einkenni eru særindi í hálsi og eymsli við að kyngja. Ef sýkingin er af völdum bakteríu er hún stundum gefið sýklalyf við henni.

  • Hver er orsökin?

    Hvernig smitast menn af veiru eða bakteríu?
    • Veirur sem valda kvefi og veiran sem veldur einkirningasótt geta einnig valdið hálsbólgu. Veirur berast manna á milli með andrúmsloftinu eða með beinni snertingu.
    • Algengasta bakterían sem veldur hálsbólgu er keðjukokkur ( streptókokkar ). Bakterían berst milli ýmist með andrúmslofti (svokallað úðasmit) eða snertingu (líkt og veirusmit). Frá smiti geta liðið 2-4 dagar áður en einkennin koma fram.
  • Hver eru einkennin?

    • Hálssærindi og eymsli þegar kyngt er.
    • Verkurinn getur leitt út í eyru.
    • Roði í hálsi, bólgnir hálskirtlar, jafnvel með skán.
    • Hiti.
    • Eitlastækkanir á hálsi.
    • Ef hálsbólgan er af völdum veiru er hún yfirleitt vægari og henni fylgir oft kvef.
    • Í hálsbólgu af völdum coxsackie veiru geta myndast litlar blöðrur á hálskirtlunum og á efri gómi. Blöðrurnar springa eftir nokkra daga og þá myndast sár sem geta valdið miklum verkjum.
    • Hálsbólga af völdum keðjukokka (streptókokka) veldur yfirleitt bólgu í hálskirtlunum ásamt skánmyndun, særindum í hálsi, hita og andremmu.
  • Hvað er til ráða?

    • Leita skal læknis við langvarandi einkenni, háan hita eða ef útbrot koma fram skal leita læknis.
    • Óþægindin má lina með volgum drykkjum og fljótandi fæði.
    • Gott er að drekka nóg af vatni.
  • Hvernig greinir læknirinn sjúkdóminn?

    Greiningin byggist á einkennum. Stundum er tekið hálsstrok í skyndipróf fyrir ákveðna streptókokkategund sem er meðhöndluð með sýklalyfi.

  • Batahorfur

    Yfirleitt stafar engin hætta af hálsbólgu og hún hverfur að öllu jöfnu innan viku. Hinsvegar getur hálsbólga haft aðra sjúkdóma í för með sér:
    • hálsbólga af völdum keðjukokka (streptókokka) getur valdið útbrotum (skarlatssótt).
    • kýli geta myndast á hálskirtlum, yfirleitt öðrum megin.
    • eyrnabólgu
    • kinnholubólgu
    • einstaka sinnum kemur gigtsótt (rheumatic fever) eða nýrnasjúkdómur (glomerulonephritis) sem er sérstök tegund bólgusjúkdóms í nýrunum.
  • Hver er meðferðin og hvaða lyf eru í boði?

    Oftast er bara beðið átekta og séð til hvort einkennin hverfi ekki fljótlega. Hálsbólga af völdum bakteríu er stundum meðhöndluð með sýklalyfjum.
    • Penisillín: Fjölmörg koma þar til greina
    • Erythromycin ef viðkomandi er með penisillínofnæmi.
    Það er engin lyfjameðferð við hálsbólgu af völdum veira.
  • Birtist fyrst 2005 á doktor.is

  • birtist fyrst 2005
  • Deila á facebook

    Fréttaskot

     
     
     
     
     

     Doktor.is | Auglýsingar | Siðareglur | Lagalegur fyrirvari
    Copyright © 1999 - 2009  Doktor.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun