Greinar »

Höfuðverkur

Skrifað föstudagur, 1. jan - 1999

  • Hvað er höfuðverkur?


  • Höfuðverkur er algengt einkenni og ástæðan fyrir 2% allra heimsókna til heimilislækna.

  • Hvað veldur höfuðverk?


  • Í lang flestum tilvikum höfuðverkja má skipta í tvo flokka eftir orsökum.
    Algengastur er spennuhöfuðverkur, sem 70% alls fólks fær einhvern tíma á ævinni. Hann er góðkynja og stafar oftast af röngum vinnustellingum. Hann má lækna eða lina með breyttum vinnustellingum eða sjúkraþjálfun. Hin tegundin er mígreni, sem þarfnast meðferðar hjá sérfræðingi (sjá síður um mígreni). Í langflestum tilvikum er höfuðverkur einkenni góðkynja krankleika en hann getur gefið vísbendingar um alvarlega sjúkdóma.

  • Eftirtalin einkenni þarfnast læknisskoðunar:


    • Leitið læknis eins fljótt og auðið er: Ákafur höfuðverkur, sem kemur skyndilega. Höfuðverkur, sem hefur í för með sér meðvitundarskerðingu, ógleði, uppköst, háan hita, hnakkastífni, krampa, sjóntruflanir og skerta tilfinningu eða stjórn á útlimum.
    • Leitið læknis við fyrstu hentugleika: Stöðugur höfuðverkur, sem ekki dregur úr. Höfuðverkur, sem hefur í för með sér minnistruflanir, einbeitingarleysi, þreytu og geðrænar breytingar.
  • Hvernig greinir læknirinn höfuðverk?


  • Nákvæm sjúkrasaga er skilyrði fyrir því, að læknirinn geti tekið afstöðu til þess hvort þörf sé á frekari rannsóknum og hvaða meðferð sé rétt.

  • Hvað er til ráða?


  • Hafi læknirinn lokið rannsókn án þess að finna beina og alvarlega orsök
    fyrir höfuðverknum er hægt að gera eftirfarandi til þess að fyrirbyggja að höfuðverkur komi aftur:
    • Forðast ofneyslu áfengis og tóbaks.
    • Sitja rétt í stólnum með slakar axlir.
    • Skipta oft um vinnustellingar, stilltu stólinn nokkrum sinnum á dag.
    • Nota vinnuhlé til að gera léttar slökunaræfingar.
    • Sofa reglulegan nætursvefn.
    • Reyna að forðast streitu.
  • Hver er rétta meðferðin og hvaða lyf er hægt að gefa?


  • Það fer algerlega eftir því hvað orsakar höfuðverkinn. Við vægum höfuðverk má nota verkjastillandi lyf á borð við parasetamól eða kódein. Sértu með magasár er rétt að forðast kódýmagnýl.
    Deila á facebook

    Fréttaskot

     
     
     
     
     

     Doktor.is | Auglýsingar | Siðareglur | Lagalegur fyrirvari
    Copyright © 1999 - 2009  Doktor.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun