Greinar » Greinar
Lifrarbólga B er sjúkdómur sem orsakast af veiru (hepatits B virus). Á undanförnum árum hefur lifrarbólga C, sem einnig orsakast af veiru (hepatitis C virus), breiðst talsvert út hér á landi einkum meðal fíkniefnaneytenda sem sprauta sig. Lifrarbólgan getur skemmt eða truflað starfsemi lifrarinnar sem m.a. veldurð því að efni úr blóði skiljast síður út með galli vegna truflunar á starfsemit lifrarinnar en þessi efni geta valdið gulu.
Smitleiðir
Lifrarbólga B smitar með svipuðum hætti og alnæmi. Algengustu smitleiðir eru samfarir, blóðblöndun, t.d. með menguðum sprautum og nálum. Einnig getur sjúkdómurinn borist frá móður til barns við fæðingu. Lifrarbólga C sýkir með blóðsmitun eins og lifrarbólga B en þó mun sjaldnar með samförum eða við fæðingu.
Einkenni
Tíminn sem líður frá smiti til einkenna af völdum lifrarbólgu B er langur eða 2-6 mánuðir. Samsvarandi tími frá smiti til einkenna af völdum lifrarbólgu C er um 1-3 mánuðir. Margir þeirra sem smitast fá engin augljós einkenni sjúkdómsins. Einkenni eru í byrjun lík flensu með ónotum í efri hluta kviðar, lystarleysi og ógleði og stöku sinnum liðverkjum. Nokkrum dögum síðar getur komið fram gula og dökknar þá þvag og hægðir lýsast. Gula og kláði geta varað vikum og mánuðum saman. Bráð einkenni lifrarbólgu C eru þó mun vægari.
Fylgikvillar
Stundum getur lifrarbólga B valdið viðvarandi lifrarbólgu sem smám saman leiðir til skorpulifrar og jafnvel lifrarkrabbameins. Ef sýking verður viðvarandi heldur viðkomandi áfram að geta smitað árum saman. Lifrarbólga C veldur mun oftar viðvarandi lifrarbólgu en lifrarbóla B og er þá viðkomandi smitandi. Hún getur með tímanum einnig valdið skorpulifur og lifrarkrabbameini.
Greining
Sjúkdómarnir eru greindir með blóðprófi. Niðurstöður liggja fyrir innan nokkurra daga frá því að próf er tekið.
Meðferð
Oftast læknast lifrarbólga B af sjálfu sér eftir nokkrar vikur eða mánuði. Verði sjúkdómurinn viðvarandi er í sumum tilvikum hægt að lækna hann eða milda með lyfjameðferð. Lifrarbólga C læknast sjaldnar af sjálfu sér en í sumum tilvikum er hægt að lækna hana með lyfjameðferð eins og lifrarbólgu B. Fyrirbyggjandi meðferð gegn lifrarbólgu B er möguleg með bólusetningu. Enn sem komið er er ekki til bóluefni gegn lifrarbólgu C.
Birt með góðfúslegu leyfi Landlæknisembættisins,
af vef embættisins um kynsjúkdómaDeila á facebook
Twitter
Lifrarbólga B og C
Landlæknisembættið
Skrifađ föstudagur, 1. jan - 1999
Skrifađ föstudagur, 1. jan - 1999
![]() |

af vef embættisins um kynsjúkdóma
Twitter
Fréttaskot
- Sykur, sykur, sykur
- Vökvaskortur
- Leghálskrabbameinsleitin til fyrirmyndar
- Heilsufarsmat - Áhćttumat
- Skimun fyrir sjúkdómum
- Heilbrigt kynlíf
- Sólvörn fyrir húđ og augu
- Hvađ er sólarexem ?
- Húđkrabbamein - forvarnir
- Hvađ er vatnshöfuđ og hverjar eru afleiđingar ţess?
- Forđist Munntóbak
- Blóđleysi (anaemia) eđa Járnskortur
Doktor.is | Auglýsingar | Siðareglur | Lagalegur fyrirvari
Copyright © 1999 - 2009 Doktor.is |