Greinar » Greinar

Heilahimnubólga

Þórólfur Guðnason, barnalæknir
Skrifađ föstudagur, 1. nóv - 2002

  • Hvað er heilahimnubólga?

  • Heilahimnubólga er bólga í heilahimnunum umhverfis heilann. Hún getur þróast á mjög skömmum tima, jafnvel nokkrum klukkustundum. Fólk á öllum aldri getur fengið heilahimnubólgu. Algengustu einkennin er hnakkastífleiki og hiti. Veirur og bakteríur geta valdið heilahimnubólgu. Heilahimnubólga af völdum bakteríu er mjög hættulegur sjúkdómur sem krefst sýklalyfjagjafar í æð sem allra fyrst. Þrátt fyrir meðferð verða 5-15% sjúklinga fyrir varanlegum skaða eða deyja. Heilahimnubólga vegna veirusýkingar er ekki talin eins hættuleg.

  • Hver er orsökin?

  • Ekki er vitað hvers vegna stálslegið fólk fær skyndilega heilahimnubólgu af völdum bakteríu. Hjá sumum er mengishnettlu bakterían hluti eðlilegrar bakteríuflóru í nefkokinu og er skaðlaus þar. Ef leið opnast milli nefkoks og heilahimnu, t.d. við höfuðkúpubrot, eykst hættan á heilahimnubólgu. Fyrirbyggjandi sýklalyfjameðferð er því oft gefin við slíka áverka. Heilahimnubólga af völdum veiru getur komið í kjölfar annarra veirusjúkdóma, t.d. er heilahimnubólga algengur fylgikvilli hettusóttar.

  • Hver eru hættumerkin?

    • Hnakkastífleiki
      er eitt mikilvægasta einkennið. Þá er mjög sárt að beygja höfuðið ofan í bringu. Hjá ungbörnum (0-2 ára) kemur þetta einkenni sjaldan fram og því er nauðsynlegt að fylgjast vel með öðrum einkennum.
    • Hiti
      yfirleitt fylgir hár hiti, 39-40 stig. Þó geta þungt haldnir sjúklingar verið hitalausir. Hafa skal í huga að verkjalyf eru hitalækkandi og geta því dulið einkennin.
    • Breytt meðvitund
      mikil þreyta og einbeitingarskortur, t.d. þegar viðkomandi veitir ekki öðrum eða umhverfi sínu athygli, eru alvarleg einkenni og krefjast nánari skoðunar. Erfitt getur verið að fylgjast með líðan barna og í vafatilvikum er rétt að leita læknis.
    • Húðblæðingar
    •  
      • Við heilahimnubólgu af völdum bakteríu fær sjúklingurinn sýklalyf í æð. Tegund lyfsins fer eftir því um hvaða bakteríu er að ræða.
      • Heilahimnubólga af völdum veirusýkingar er oftast hættulaus og því sjaldan meðhöndluð nema sjúklingurinn sé mjög veikur.
    • blæðingar geta komið fram í húðinni áþekkar nýjum marblettum og geta verið allt frá títuprjónshaus upp í stóra flekki að stærð. Blæðingarnar gefa til kynna að baktrerían hafi borist út í blóðið. Þetta er mjög alvarlegt merki og þarfnast tafarlausrar meðferðar og innlagnar á sjúkrahús. Höfuðverkur, ógleði og uppköst.
      Meðvitundarleysi.
      Ef sjúklingur (fullorðinn eða barn) er hnakkkastífur, með háan hita og breytt meðvitundarstig skal hringja strax eftir lækni eða í neyðarlínuna, 112.

    • Sjálfshjálp

    • Ekkert er hægt að gera til að koma í veg fyrir heilahimnubólgu. Fylgjast skal vel með einkennum ef börn eða nákomnir eru með háan hita. Ef grunur leikur á að um heilahimnubólgu sé að ræða skal hafa samstundis samband við lækni. Þegar kannað er hvort barn sé hnakkastíft er mikilvægt að barnið sé rólegt (grátandi barn er næstum alltaf stíft í hnakkanum). Ef barnið er með hita en hagar sér eðlilega og leikur sér er ekki mjög líklegt að um heilahimnubólgu sé að ræða.

    • Hvernig greinir læknirinn sjúkdóminn?

    • Ef grunur leikur á að um heilahimnubólgu sé að ræða er gerð mænustunga. Sjúklingurinn situr og hallar sér fram eða liggur í kuðung á hliðinni. Neðri hluti baksins er sótthreinsaður, húðin deyfð á litlum bletti, þunnri nál stungið inn á milli neðstu hryggjarliðanna og sýni tekið úr vökvanum sem umlykur heilann og mænuna (mænuvökva). Einnig er tekið blóðsýni, þar sem leitað er að bakteríum og öðrum ummerkjum sýkingar.

    • Hver er meðferðin?

    • Batahorfur

    • Heilahimnubólga af völdum bakteríusýkingar er mjög hættulegur sjúkdómur sem leiðir nær alltaf til dauða ef meðferð er ekki veitt og þrátt fyrir bestu meðferð deyja 5-10% sjúklinga. Batahorfur sjúklinga með heilahimnubólgu af völdum veirusýkingar eru mjög góðar.

    • Hvaða lyf eru í boði?

    • Ekki er vitað nákvæmlega hvaða bakteríutegund veldur heilahimnubólgunni. Gefin eru breiðvirk sýklalyf sem verka á margar tegundir baktería. Þegar ræktun hefur leitt í ljós um hvaða tegund er að ræða er gefið sýklalyf sem verkar aðeins á þá bakteríu. Oft er um að ræða gamla góða penisillínið. Ef sjúklingurinn er með penisillínofnæmi er notað annað lyf. Hægt er að gefa fyrirbyggjandi meðferð með sýklalyfi eða bóluefni gegn mengishnettlusýkingu (meningokokka-sýkingu). Nánustu ættingjum sjúklings er stundum gefið bóluefnið, einnig er það notað ef faraldur kemur upp. Það veitir þó ekki fullkomna vörn. Mestu skiptir að þekkja einkennin og bregðast fljótt við þeim.
    Deila á facebook

    Fréttaskot

     
     
     
     
     

     Doktor.is | Auglýsingar | Siðareglur | Lagalegur fyrirvari
    Copyright © 1999 - 2009  Doktor.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun