Methotrexate Wyeth Lederle

krabbameinslyf (L01)

Lyfja logo

Upplýsingar fengnar hjá Lyfju.

Metótrexat tilheyrir flokki efna sem koma í veg fyrir myndun eða nýtingu ýmissa lífsnauðsynlegra efna í frumum. Metótrexat hindrar myndun fólínsýru í frumum, en fólínsýra er nauðsynleg fyrir nýmyndun erfðaefnis. Áhrif metótrexats eru mest þar sem frumuskipting er hvað örust, eins og í illkynja æxlisfrumum, beinmerg, fósturfrumum, húðfrumum og í slímhúð meltingarfæra. Þessir eiginleikar metótrexats eru nýttir í meðferð á ýmsum tegundum krabbameina. Metótrexat er einnig notað við iktsýki, en verkunarmáti lyfsins gegn bólgusjúkdómum er ekki að fullu þekktur. Þegar metótrexat er notað í stórum skömmtum er hægt að gefa afbrigði af fólínsýru með lyfinu til að draga úr eiturverkunum þess. Heilbrigðar frumur nýta fólínsýruna betur en krabbameinsfrumur. Þeir sem þjást af skemmdum í lifur, nýrum eða beinmerg, hafa alvarlegan lungnasjúkdóm eða neyta áfengis í óhófi eiga ekki að nota lyfið.

  • Lyfjaform:
    Töflur til inntöku og stungulyf og innrennslislyf í æð og í vöðva.
  • Venjulegar skammtastærðir:
    2,5mg
  • Innihaldsefni:
    Metótrexat
Sjá nánar á www.lyfja.is »

Fréttaskot

 
 
 
 
 

 Doktor.is | Auglýsingar | Siðareglur | Lagalegur fyrirvari
Copyright © 1999 - 2009  Doktor.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun