Offita - kjörþyngd (sjálfskönnun)
Kannaðu hvort þú sért of þung/ur - reiknaðu út BMI-vægi þitt
Ein leið til að kanna offitu er svokallað BMI-próf. Þannig er hægt að reikna út hlutfallið milli hæðar og þyngdar.Taflan sýnir æskilegt BMI-vægi
| Aldur | Vannæring (auka þarf þyngdina) |
Heilbrigði | Ofeldi (aukin dánartíðni) |
Offita (verulega aukin dánartíðni) |
| Yfir 35 ára | BMI undir 19 | BMI: 19 - 26 | BMI: 27 - 30 | BMI yfir 30 |
| 18-34 ára | BMI undir 19 | BMI: 19 - 24 | BMI: 25 - 30 | BMI yfir 30 |
Að sjálfsögðu er fólk misjafnlega byggt - því hleypur eðlileg þyngd á vissu bili. En ef BMI-vægið er yfir 25-27, ætti að huga að þyngdinni, svo að það bitni ekki á heilsunni. Offita getur m.a. framkallað sykursýki, hjartasjúkdóma, krabbamein og of háan blóðþrýsting.
Margir halda þó, að þeir séu of þungir án þess að það sé reyndin. Þótt fólk sé aðeins betur í holdum en fyrirsætur tískublaðanna, er ekki sjálfgefið, að um offitu sé að ræða. Í reynd er hollt að hafa hæfilega líkamsfitu. Um það bil 10-18 % af líkamsþyngd karla og 18-25 % af líkamsþyngd kvenna á að vera fita. Það er líkamanum nauðsyn.
Ef BMI er yfir 30 er áríðandi að grípa til aðgerða.
(Gættu að því að BMI-vægið á ekki við um vaxtarræktarfólk þar sem vöðvamassi þeirra er ekki í samræmi við BMI; einnig getur fólk með óvenju þung bein sýnt óvenju hátt BMI-vægi án þess að um offitu sé að ræða.)
- Til athugunar: Hægt er að lækka BMI-vægið án þess að svelta sig. Tilgangurinn og markmiðið er að bæta heilsuna og líðan í framtíðinni.
- ÁBENDING: Þú getur fundið út í töflunni hér að ofan, hvað er ráðlegt að léttast mikið.
Kannaðu hvort þú ert epla- eða perulaga
Fréttaskot
- Sykur, sykur, sykur
- Vökvaskortur
- Leghálskrabbameinsleitin til fyrirmyndar
- Heilsufarsmat - Áhættumat
- Skimun fyrir sjúkdómum
- Heilbrigt kynlíf
- Sólvörn fyrir húð og augu
- Hvað er sólarexem ?
- Húðkrabbamein - forvarnir
- Hvað er vatnshöfuð og hverjar eru afleiðingar þess?
- Forðist Munntóbak
- Blóðleysi (anaemia) eða Járnskortur
Doktor.is | Auglýsingar | Siðareglur | Lagalegur fyrirvari
Copyright © 1999 - 2009 Doktor.is |

