Lagalegur fyrirvari

Mikilvægar lagalegar upplýsingar

Efni Doktor.is er aðeins ætlað til fræðslu og upplýsingar.

Upplýsingar á Doktor.is eiga á engan hátt að koma í stað faglegrar aðstoðar lækna eða annars fagfólks.

Doktor.is leggur ríka áherslu á að notendur sem eiga við sjúkdóma að stríða skuli alltaf leita sér aðstoðar lækna eða annars viðeigandi fagfólks. Ef einhverjar spurningar eða efasemdir vakna um heilsufar skal leitað til læknis áður en gripið er til nokkurrar meðferðar.

Efni Doktor.is á ekki og má ekki á nokkurn hátt nota sem grunn að sjúkdómsgreiningu eða við val á meðferð.

Doktor.is ber ekki ábyrgð á neinu tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að hljótast af notkun eða misnotkun þeirra upplýsinga sem er að finna á netsvæðinu eða tengdum svæðum.

Allt efni á Doktor.is lýtur höfundaréttarlögum og reglum, og má á engan hátt dreifa eða framselja án skriflegs samþykkis Doktor.is.

Notendum er heimilt að afrita efni til eigin nota með eftirfarandi skilyrðum:

  1. að efnið sé óstytt og óbreytt.
  2. að ekkert gjald sé tekið fyrir afritun eða aðgang að efninu.
  3. að upplýsingar um höfundarétt og þetta skjal fylgi efninu. Doktor.is sé skýrt getið sem heimildar.

Doktor.is ber ekki neina ábyrgð á efni því sem birt er á opnum umræðusíðum svæðisins. Eðli málsins vegna er ógjörningur að ritstýra eða stjórna innihaldi þeirra.

Skoðanir og viðhorf höfunda efnis á Doktor.is endurspegla ekki endilega skoðanir eða viðhorf eigenda eða starfsmanna Doktor.is

Verði notendur hins vegar varir við ótilhlýðilegt efni er þeim bent á að hafa tafarlaust samband við okkur (ritstjori@doktor.is) svo hægt sé að fjarlægja það. Með þessu er átt við eftirfarandi: klámfengið efni, ósiðlegt, ólöglegt, ófaglegt, óskráð, særandi efni eða efni sem á annan hátt stríðir gegn velsæmi og siðlegri hegðun.

Allir sem senda efni eða setja efni inn á svæðið skulu gefa upp fullt nafn og geta ekki framselt rétt sinn til að senda efni í sínu nafni til þriðja aðila.

Ef ofangreindir skilmálar þykja ekki aðgengilegir af einhverjum ástæðum er viðkomandi beðinn um að yfirgefa vefsvæðið.

© Copyright 1999 - 2001, Doktor.is. Öll réttindi áskilin. Doktor.is® er skrásett vörumerki.

Fréttaskot

 
 
 
 
 

 Doktor.is | Auglýsingar | Siðareglur | Lagalegur fyrirvari
Copyright © 1999 - 2009  Doktor.is | Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun